Dalbraut 1, Akranesi

Dalbraut 1, Akranesi

Síðasta föstudag tók Halldóra Jónsdóttir bæjarbókavörður á Akranesi við lyklum að nýju og rúmgóðu safnahúsnæði að Dalbraut 1. Haukur Adolfsson forstjóri verktakafyrirtækisins Virkjunar afhenti lyklana, en Virkjun ehf. hafði yfirumsjón með byggingunni og öllum frágangi á húsnæðinu. Undirbúningur að flutningi safnanna er þegar hafin, en hann er mjög viðamikið verk. Í því sambandi hefur verið beint til viðskiptavina bókasafnsins að vera duglegir að taka bækur að láni nú í sumar til að auðvelda flutninginn. Bókasafnið verður opið út júlímánuð á Heiðarbraut 40 en lokar 4. ágúst og verður lokað í tvo mánuði.

Tengd verkefni