Almennar Upplýsingar
Virkjun ehf er alhliða verktakafyrirtæki með áratuga reynslu sem tekur að sér allar stærðir og gerðir verkefna. Fyrirtækið hefur á s.l árum byggt tugþúsundir fermetra í skrifstofu, verslunar og iðnaðarhúsnæði sem aðalverktaki auk fjölda viðhalds og nýbygginga verkefna í öllum iðngreinum.
Virkjun ehf byggir á miklum vinnuvéla, bíla og verkfærakosti auk öflugs og reynslumikils hóps iðnaðarmanna s.s pípara, rafvirkja, múrara, málara, smiða, blikkara osfrv.
Virkjun ehf hefur gæðavottun frá Samtökum Iðnaðarins og hefur það ávallt að leiðarljósi að skila gæðafrágangi á tilsettum tíma svo heildarkostnaður viðskiptavina haldist ávallt í lágmarki.