Virkjun  | Mörkin 3, 108 Rvk | 587 8000 | virkjun@virkjun.is
| Forsíða | Virkjun | Fréttir | Framkvæmdir



Ný og glæsileg verslun Elko opnaði í Skeifunni þann 25. mars 2004.  Virkjun sá um alla lagnavinnu þessarar glæsilegu verslunar sem er stærsta raftækjaverslun landsins og leiðandi á sínu sviði á Íslandi.  Verkefnisstjóri var Gilbert Moestrup og þykir hann sjaldan hafa sýnt sínar sparihliðar betur en í þessu verki.

Virkjun gerði samning við ÍAV um pípulagningu nýs íþróttamannvirkis í Hofstaðamýri milli Hofstaðaskóla og Fjölbrautaskóla Garðabæjar. Íþróttamannvirkið verður um 4200 fm að stærð á tveimur hæðum með íþróttasal og sundlaug.  Verkið hófst í ágúst 2003 og eru verklok í lok ágúst 2004. Verkefnisstjóri Virkjunar er Mikael Jóhannesson pípulagningamaður.

Sumarið 2000 hóf Virkjun vinnu við Lágafellsskóla í Mosfellsbæ og lauk henni haustið 2001.  Um er að ræða 5000 fm skóla að gólffleti sem byggður er í boga með 400 metra radíusi.  Skólinn er í Lækjarhlíð í Mofellsbæ og þykir hin mesta prýði fyrir bæjarfélagið.

Virkjun gerði í október 2003 samning við IAV um alla lagnavinnu í leikskólanum Holti í Reykjanesbæ.  Verkefnisstjóri er Haraldur ó Haraldsson pípulagningameistari.
Í skólanum eru 52 börn, 46 börn eru samtímis.  Leikskólinn er á Stapagötu 10 í Reykjanesbæ.

Á vordögum 2003 tók Virkjun að sér allt lagnaverk við nýbyggingu Hótel Búða á Snæfellsnesi. Eins og kunnugt er eyðilagist hið fornfræga hótel í eldsvoða árið 2001. Nýja hótelið var opnað með viðhöfn sumarið 2003.
Við hönnun nýja hótelsins var leitast við að halda í þann anda sem staðurinn hefur verið þekktur fyrir.

Virkjun gerði nýlega samning við Íslenska Aðalverktaka um pípulagnir í nýbyggingu háskólans á Akureyri. Um er að ræða rannsóknar og nýsköpunarhús og er byggingin um 7000 m2 að stærð. Verkið hófst í janúar 2004 og eru verklok áætluð í október sama ár. Verkefnistjóri er Björn Júlíusson pípulagningameistari.

Virkjun hefur gert samning við Stálex ehf um allar pípulagnir að Fiskislóð 3. Þar er að rísa 1500 m2 verslunarhús sem verður tekið í notkun í maí 2004.  Í húsinu verður fullkomið vatnsúðakerfi hannað af Garðari Ingþórssyni.

Virkjun annaðist alla lagnavinnu við stórverslun BYKO sem opnuð var haustið 2002 í Breiddinni Kópavogi. Verslunin er sú stærsta á landinu á sínu sviði.  Verkefnistjóri Virkjunar við bygginguna var Haukur Adolfsson pípulagningameistari. 


Virkjun hefur annast allar lagnir í Hlíðahverfi, Mosfellsbæ.  Nýlega  afhentu IAV  100 íbúðina og nú eru í byggingu um 100 íbúðir til viðbótar.  Bygging hverfisins hófst í mars 2001 og voru fyrstu íbúðir afhentar í nóvember sama ár.  Sérlega rúmt er um húsin í hverfinu, en þau samanstanda af lágreistum fjölbýlishúsum og raðhúsum. Hverfið er mjög fjölskylduvænt í nálægð við skóla og leikskóla auk þess sem stutt er á góð útivistarsvæði.  Á myndinni hér við hliðina má sjá glæsilega byggingu í Klapparhlíð. 

B&L
Virkjun vann að byggingu hinna glæsilegu höfuðstöðva Bifreiða og landbúnaðarvéla.  Þann 1.maí 1998 var fyrsta skóflustungan tekin á Grjóthálsi 1.  Á innan við ári var reist 7500 m2 glæsilegt húsnæði á 14.000 m2 lóð

Virkjun lagði pípulögn í nýbyggingu Fjölbrautarskólans í Garðabæ.  Til gamans má geta að Fjölbrautaskólinn í Garðabæ starfar nú samkvæmt nýjum lögum um framhaldsskóla frá 1995 og nýrri reglugerð um framhaldsskóla.

Virkjun hjálpaði sólarþyrstum íslendingum að eignast sína fyrstu strönd!  Ströndin var vígð sumarið 2000 og ári síðar var opnuð þjónustumiðstöð með búningsklefum, baðaðstöðu og veitingasölu.  Að sumarlagi er sjór við ströndina um 10°C og þá er fyrir hendi umtalsvert affallsvatn frá hitaveitutönkum Orkuveitunnar í Öskjuhlið sem er um 30°C.

Virkjun lætur að sjálfsögðu ekki sitt eftir liggja þegar kemur að menntun þjóðarinnar eins og lagnir stúdentagarðannna bera vott um. 
Félagsstofnun stúdenta annast rekstur Stúdentagarða. Hlutverk þeirra er að bjóða námsmönnum við Háskóla Íslands til leigu hentugt og vel staðsett húsnæði á sanngjörnu verði.


Flugvél Virkjunar, TF-EGO kom að góðum notum þegar lagt var í Ratsjárstöðina á Gunnólfsfjalli.
Langanes er stór skagi austan Þistilfjarðar, allbreiður vestast en mjókkar út í örmjóan bjargtanga austast, þar sem heitir Fontur.

Virkjun lagði í starfmannaaðstöðu starfsmann Blönduvirkjunar.  Blönduvirkjun er fyrsta stórvirkjun Íslendinga sem segja má að sé að öllu leyti Íslensk hönnun. Fyrsta vélasamstæða var tekin í notkun haustið 1991 en í mars 1992 var hún komin í fullan rekstur.  Helstu kennitölur.......


Virkjun lagði í starfsmannahús Orkuveitu Reykjavíkur við Nesjavelli.  Nesjavellir eru háhitasvæði sem tengist eldstöðvakerfi Hengilssvæðisins, en á slíkum svæðum er hitinn allt að 200°C á 1 km dýpi. Nesjavallavirkjun var opnuð í september 1990 og hefur verið stækkuð í tveimur áföngum, en hún er nú stærsta gufuaflsvirkjun landsins, 90 MW. Orkuverið á Nesjavöllum er hannað fyrir 400 MW hámarksframleiðslu, en nú er framleiðslugeta þess um 200 MW......

Virkjun  |Mörkin 3, 108 Rvk| 587 8000 | virkjun@virkjun.is